Fimm Þórsarar valdir í U15 verkefni

Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur valið leikmannahóp til þátttöku í tveimur æfingaleikjum gegn Ungverjalandi sem fara fram á Selfossi 30. ágúst og 1. september.

Valinn var 21 manns hópur og í þeim hópi eru fimm Þórsarar; það eru þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson, Egill Orri Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Sigurður Jökull Ingvason og Sverrir Páll Ingason.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Við óskum strákunum til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.