Fjölmennt á Bombumóti Píludeildar

Alls tóku 76 þátt í Bombumóti Píludeildar Þórs í gærkvöld. Myndin er af Facebook-síðu deildarininar.
Alls tóku 76 þátt í Bombumóti Píludeildar Þórs í gærkvöld. Myndin er af Facebook-síðu deildarininar.

Bombumót Píludeildarinnar var haldið í gær, spilaður tvímenningur og tóku 38 lið þátt. 

Fram kemur á Facebook-síðu deildarinnar að mótið hafi gengið frábærlega fyrir sig þrátt fyrir þennan fjölda, 76 keppendur, og það sýni að allt sé hægt ef viljinn er fyrir hendi. Á endanum voru það Viðar Valdimarsson og Freyr Hólm sem sigruðu og hlutu skottertur frá Björgunarsveitinni Súlum að launum. 
 
Liðunum var skipt í sex riðla og fóru tvö efstu lið úr hverjum riðli áfram í 16 liða úrslit ásamt fjórum liðum með bestan árangur í 3. sæti. Þeim liðum sem komust ekki í 16 liða úrslitin bauðst að spila um svokallaðan forsetabikar og þáðu 18 lið það boð.
 
Í undanúrslitum A-keppninnar mættust annars vegar Karl Ólafur/Birgir Þór gegn Garðari Gísla/Óskari Páli og hins vegar Viðar/Freyr Hólm gegn Valþóri Atla/Agnari Bjarna. Garðar Gísli og Óskar unnu sína viðureign, sem og Viðar og Freyr Hólm. Úrslitaviðureignin var jöfn og spennandi en á endanum voru það Viðar Valdimarsson og Freyr Hólm sem sigruðu 4-3 í leik þar sem bæði lið fengu færi á að klára leikinn. Óskar Jónasson og Halla Soffía unnu forsetabikarinn eftir úrslitaviðureign við Jason Wright og Örvar Elíasson. 
 
Sá þátttakandi sem fyrstur skoraði 180 í 16 liða úrslitunum - hæsta skor sem hægt er að ná með þremur pílum - fékk sérstök verðlaun og var það hinn ungi Sigurður Þórisson sem nældi í þau í fyrsta leik. Nafni hans, Sigurður Fannar Stefánsson, vann sams konar verðlaun í keppni um forsetabikarinn, fyrstur til að skora 180.
 
Fyrir þau sem ekki eru kunnug pílukasti þá þarf að hitta öllum þremur pílunum í lítinn reit sem er hluti af 20 stiga reitnum til að skora 180, en þessi litli reitur gefur þrefalt, semsagt 60+60+60, og er sá reitur sem píluspilarar reyna oftast við í venjulegum leik.
 
Ritstjóri thorsport.is tók sér það bessaleyfi að setja myndir frá árinu 2022 sem birtar hafa verið á Facebook-síðu deildarinnar saman í eitt albúm hér á heimasíðunni. Ef smellt er á myndina af þeim Frey og Viðari opnast albúmið.
 

Freyr Hólm og Viðar Valdimarsson, sigurvegarar Bombumótsins 2022.