Fjórar úr Þór/KA æfa með U16

Magnús Örn Helgason og Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfarar U16 kvenna, hafa valið hóp fyrir æfingar dagana 18.-20. janúar. Æfingarnar fara fram í Miðgarði.

Í hópnum eru fjórir leikmenn úr 3.flokki Þórs/KA. Það eru þær Katla Bjarnadóttir, Karlotta Björk Andradóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir og Tinna Sverrisdóttir.

Hópinn í heild má sjá með því að smella hér.

Óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.