Fjórir Þórsarar í æfingahópi U15

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum dagana 11.-13. janúar.

Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ, en 28 leikmenn frá 15 félögum voru valdir, flestir frá Þór eða alls fjórir.

Það eru þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson, Egill Orri Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson og Sverrir Páll Ingason.

Smelltu hér til að skoða hópinn í heild sinni.

Óskum drengjunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum