Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Þórhallur Siggeirsson, þjálfari U19 karla, hefur valið leikmannahóp fyrir leiki í undanriðli EM í Wales 9. - 18. nóvember næstkomandi.
Með Íslandi í riðli eru heimamenn í Wales ásamt Spáni og Finnlandi.
Í hópnum eru fjórir leikmenn Þórs; þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Sverrir Páll Ingason og Þorri Ingólfsson (lánsmaður frá Víkingi).
Þar með eru ekki upptaldir allir Þórsararnir í hópnum en Þórsararnir Egill Orri Arnarsson og Sigurður Jökull Ingvason, sem eru á mála hjá danska liðinu Midtjylland, eru einnig í hópnum. Þá verður markmannsþjálfari íslenska liðsins í verkefninu okkar maður Franko Lalic.
Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.
Við óskum okkar mönnum til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.