Fótbolti: Leikjadagskrár Kjarnafæðimótsins

Kjarnafæðimótið 2024 er komið af stað. Áformað er að tíu leikir verði spilaðir í desember. 

Því miður verður mótið ekki sett upp í mótakerfi KSÍ að þessu sinni og því ekki hægt að fletta upp á leikjadagskrá, úrslitum, stöðu eða leikskýrslum þar.
Leikjadagskráin hefur verið sett upp og birt af KDN, með fyrirvara um að á henni geti orðið breytingar.

Einn leikur er á dagskrá mótsins í kvöld, þegar Þór tekur á móti K.A.2 í Boganum. Leikurinn hefst kl. 19.

Upplýsingar um leiki, breytingar á leiktímum eða leikdögum, og umfjöllun um leiki má í stað þess finna á Facebook-síðu Knattspyrnudómarafélags Norðurlands.