Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar Þórs var haldinn í gær sunnudag 26.apríl kl. 17:00 í Hamri.
Fór fundurinn vel fram samkvæmt dagskrá. Þegar komið var að kosningum og búið að staðfesta stjórn unglingaráðs körfuknattleiksdeildar varð ljóst að ekki myndi takast að mynda stjórn meistaraflokks.
Guðjón Andri Gylfason formaður körfuknattleiksdeildar lagði til að þessum lið yrði frestað; bar fundarstjóri það upp við fundargesti og var það samþykkt.
Framhaldsaðalfundur verður haldinn sem fyrst, þegar búið er að vinna í að mynda nýja stjórn meistaraflokks.