Franko Lalic hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Þórs út árið 2028.
Franko kom til félagsins fyrir tímabilið 2025 og hefur verið markmannsþjálfari og leikmaður við afar góðan orðstír.
Samhliða því hefur Franko séð um markmannsþjálfun í yngri flokkum og mun halda því áfram næstu tvö árin.