Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Aðalfundur Íþróttafélagsins Þórs fyrir árið 2025 fór fram í Hamri miðvikudaginn 30.apríl síðastliðinn.
Formaður Þórs, Nói Björnsson, setti fundinn og útnefndi Geir Kristinn Aðalsteinsson sem fundarstjóra og Pál Jóhannesson sem fundarritara.
Nói flutti svo skýrslu stjórnar þar sem ýmislegt áhugavert kom fram. Nói rakti meðal annars ganginn í framkvæmdum á svæðinu, bæði þeim sem eru í gangi á Ásnum, íþróttahús sem stendur til að hefja framkvæmdir við á næstunni. Einnig fyrirætlanir um að klára það sem ekki hefur verið klárað á aðalvelli félagsins, þ.e. að leggja gervigras og að setja þak á stúkuna. að gervigras komi á gamla aðalvöllinn auk
Skrásetning sögu Þórs er í vinnslu og er stefnt að því að birta fyrsta kafla (1915-1940) á afmæli félagsins í júní.
Nói hvatti fundarmenn að bjóða alla Akureyringa og aðra sem vilja koma í félagið að taka því fólki opnum örmum. Okkur vantar hendur í starfið en númer eitt það er svo gott að vera Þórsari.
Að lokum þakkaði Nói öllum félagsmönnum, sjálfboðaliðum, starfsfólki fyrir samstarfið og óskaði öllum góðs gengis í komandi verkefnum. En umfram allt verum þessu fólki þakklát fyrir vinnu sína og elju því það er ekki sjálfgefið að fólk gefi af sér. Munum að segja takk.
Í kjölfarið fór Ragnheiður Jakobsdóttir, gjaldkeri aðalstjórnar, yfir reikninga félagsins og lagði ársreikning fram til samþykktar. Eftir umræður um skýrslu formanns og gjaldkera var reikningurinn borinn upp til samþykktar og var samþykktur einróma.
Næst var komið að tillögum um lagabreytingar og lágu fyrir fjórar breytingar á lögum félagsins og voru þær teknar fyrir áður en komið var að kosningum. Niðurstaða þeirra var eftirfarandi.
Stjórn Þórs næsta árið verður skipuð. Formaður Nói Björnsson kosinn til eins árs í senn. Aðrir í stjórn eru, Ragnar Níels Steinsson, Þorgils Sævarsson, Árni Rúnar Jóhannesson, Ragnheiður Jakobsdóttir, Hjálmar Pálsson, Jórunn Jóhannesdóttir, Bjarni Sigurðsson og Eyjólfur Magnússon. Úr stjórn ganga þeir Unnsteinn Jónsson og Sigurður Bjarnar Pálsson. Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi.
________________________