Fyrsta umferð Íslandsmótsins í 6.flokki er á Akureyri um helgina

Um helgina fer fram fyrsta umferð Íslandsmótsins í handknattleik hjá 6. flokki karla og kvenna / eldra ár hér á Akureyri. Leikið er í KA-Heimilinu og Íþróttahöllinni en leikið er laugardag og sunnudag. Unglingaráð Þórs og KA í handknattleik halda mótið í sameiningu. KA-menn ætla sér að halda utan um úrslitin í mótinu á heimasíðu sinni og má sjá leikjaplanið hér.