Gleðistund í Hamri þegar samkomulag um nýja íþróttamiðstöð var undirritað

Nói Björnsson formaður Þórs og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri undirrituðu samkomulagið.
Mynd - …
Nói Björnsson formaður Þórs og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri undirrituðu samkomulagið.
Mynd - Skapti Hallgrímsson - Akureyri.net

Samkomulag um uppbyggingu íþróttamiðstöðvar á félagssvæði íþróttafélagsins Þórs var undirritað í Hamri í dag við hátíðlega athöfn.

Hillir nú loks undir að íþróttahús rísi á félagssvæðinu en eins og allir Þórsarar vita hefur félagið búið við þá óskemmtilegu sérstöðu á landsvísu að vera ekki með íþróttahús fyrir flestar af íþróttagreinum félagsins á félagssvæðinu.

Tilkynningu Akureyrarbæjar af þessu tilefni má lesa hér að neðan.

Með samkomulaginu er sett af stað vinna við hönnun á íþróttamiðstöð á félagssvæði Þórs og í kjölfarið gerður samningur um fyrirhugaða uppbyggingu þar sem fram kemur nákvæm áætlun um verkefnið.

Í íþróttamiðstöðinni er gert ráð fyrir íþróttasal með áhorfendabekkjum og aðstöðu eins og best verður á kosið fyrir leiki í efstu deild í meistaraflokki í körfubolta og handbolta, sem og mótahald yngri flokka. Önnur rými, s.s. áhaldageymsla og stoðrými, sem fylgja íþróttasalnum verða í samræmi við þörfina sem fylgir íþróttasal af þessari stærð.

Í íþróttamiðstöðinni verður gert ráð fyrir lyftingasal, æfingaaðstöðu fyrir deildir Þórs auk forsals og afgreiðslu, félagssal, fundarrými og skrifstofum ásamt öðrum stoðrýmum.

Heildar stærð íþróttamiðstöðvarinnar mun liggja fyrir þegar frumhönnun hefur verið lögð fram en er áætluð frá 4.600m² og að hámarki 5.300 m². Þar af er íþróttasalur með um 2.300-2.500 m² gólfflöt.