Grill 66: Þórsarar fara í Hafnarfjörðinn í kvöld

Vekjum athygli á breyttum leiktíma í Hafnarfirðinum.
Vekjum athygli á breyttum leiktíma í Hafnarfirðinum.

Leik Þórs og ungmennaliðs Hauka hefur verið flýtt um hálftíma frá upphaflegum leiktíma, hefst kl. 19:30.

Keppnin í Grill 66 deildinni styttist í annan endann og eiga okkar menn núna fimm leiki eftir í deildinni. Þeir halda í Hafnarfjörðinn í dag og mæta ungmennaliði Hauka sem er í 5. sæti deildarinnar með 13 stig, á meðan okkar menn eru í 9. sætinu með tíu stig. Fyrri leik liðanna sem fram fór í nóvember lauk með eins marks sigri Hauka, 33-34.