Hæfileikamótun drengja - Sex Þórsarar taka þátt

Lúðvík Gunnarsson, yfirmaður í Hæfileikamótun N1 og KSÍ, hefur valið hóp sem tekur þátt í Hæfileikamótun.
 
Þórsararnir Ásbjörn Líndal Arnarsson, Egill Orri Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Kjartan Ingi Friðriksson, Kjartan Steinn Jónasson og Sverrir Páll Ingason hafa verið valdir til þátttöku í Hæfileikamótun KSÍ sem fram fer í næstu viku.
 
Strákarnir eru allir hluti af sterku liði 4.flokks sem hefur ekki tapað leik til þessa í sumar.
 
Óskum strákunum til hamingju með valið og góðs gengis!