Handboltaveisla á föstudagskvöld

 

Þórsarar taka á móti ungmennaliði Hauka í sjöttu umferð Grill 66 deildarinnar föstudagskvöldið 12. nóvember kl. 19:30.

Það vantaði ekki mætingu og stemningu á síðasta heimaleik og kjörið tækifæri fyrir handboltaáhugafólk og alla Þórsara að grípa keflið og halda áfram af þeim krafti sem okkar fólk sýndi í stúkunni síðastliðið laugardagskvöld þó svo úrslit leiksins hafi verið svekkjandi. Þórsliðið er núna um miðja deild, situr í 5. sætinu með tvo sigra, eitt jafntefli og tvö töp. Haukar U eru í 9. og næstneðsta sæti deildarinnar með einn sigur úr fjórum leikjum.

Leikurinn hefst kl. 19:30 á föstudagskvöld og fer að sjálfsögðu fram í Íþróttahöllinni. Að venju verða borgarar á grillinu og Höllin opnuð með góðum fyrirvara.