Handbolti: KA/Þór spilar í Eyjum í dag

Í dag lýkur 8. umferð Olísdeildar kvenna í handbolta með tveimur leikjum. KA/Þór mætir ÍBV í Vestmannaeyjum..

Eftir erfiða byrjun á mótinu hefur KA/Þór nú unnið tvo leiki í röð í deildinni og þar á milli reyndar einnig leik í bikarkeppninni. Fyrir leikinn gegn ÍBV situr liðið í 6. sæti deildarinnar með fimm stig, en ÍBV er í 4. sæti með átta stig. ÍBV tapaði á útivelli gegn Stjörnunni í síðustu umferð á meðan KA/Þór vann frækinn útisigur á Fram.

  • Deild: Olísdeild kvenna
  • Leikur: ÍBV - KA/Þ’or
  • Staður: Vestmannaeyjar
  • Dagur: Laugardagur 4. nóvember
  • Tími: 14:00