Handbolti: KA/Þór tekur á móti Val í dag

Frítt er á leik KA/Þórs og Vals i dag í boði Kjarnafæðis.

Valur er í 2. sæti Olísdeildarinnar með 14 stig úr átta leikjum, eins og Haukar sem eru í toppsætinu. KA/Þór er í 6. sæti deildarinnar með fimm stig eftir átta leiki. KA/Þór beið ósigur gegn ÍBV í Eyjum í 8. umferðinni á meðan Valur vann Fram á útivelli.

Leikurinn hefst kl. 15.

Allir leikir Olísdeildarinnar eru sýndir beint í Sjónvarpi Símans.

Olísdeildin: stöðutafla.