Handbolti: Þórsarar sækja ungmennalið Vals heim

Þórsarar leika síðasta leik sinn í Grill 66 deildinni fyrir jólafrí þegar þeir sækja ungmennalið Vals heim í Origo-höllina í dag kl. 16.

Ungmennalið Vals er í 7. sæti deildarinnar með sjö stig úr átta leikjum. Þórsarar eru í 2. sæti með 13 stig úr níu leikjum, þremur stigum á eftir ungmennaliði Fram og jafnir Fjölnismönnum að stigum.

Leikur liðanna verður í beinni útsendingu á handboltarás hjá Sjónvarpi Símans.