Handbolti: Útileikur hjá okkar mönnum

Þórsarar hafa byrjað Grill 66 deildina nokkuð vel þetta árið, eru með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina. Í dag mæta þeir ungmennaliði Hauka í Hafnarfirðinum. Leikurinn hefst kl. 16.

Eins og áður hefur komið fram eru núna allir leikir Grill 66 deildarinnar í beinni útsendingu með sjálfvirku myndavélakerfi í keppnishöllunum. Leikirnir eru sýndir í Sjónvarpi Símans, rásum 401-405.

Þórsarar eru í 3. sæti Grill deildarinnar fyrir leikinn í dag, hafa unnið einn leik og gert eitt jafntefli, eru með þrjú stig eins og áður sagði. Ungmennalið Hauka er með tvö stig eftir að hafa tapað fyrir Fjölni og síðan unnið ungmennalið Fram.

Leikurinn í Hafnarfirðinum hefst kl. 16.