Haustæfingar fótboltans

Frá og með mánudeginum 21.ágúst æfa yngri flokkar Þórs í fótbolta samkvæmt hausttöflu sem er í gildi til 30.september næstkomandi.

Æfingatímar verða uppfærðir á Sportabler í dag.

Yngri flokkar verða í fríi 1-15.október og mánudaginn 16.október hefjast æfingar samkvæmt vetrartöflu. Stefnt er að því að gefa út æfingatöflu vetrarins í byrjun september.

Flokkaskipti munu fara fram á meðan haustæfingar eru í gangi en ekki á sama tíma hjá öllum flokkum. Það verður því kynnt vel á Sportabler hjá hverjum árgangi fyrir sig þegar þar að kemur.