Hefur þú áhuga á íþróttum ? Láttu rödd þína heyrast

Hefur þú áhuga á íþróttum?
Við viljum bjóða þér/ykkur á fundi um íþróttir þann 24. mars næstkomandi í Íþróttahöllinni á Akureyri, 2 hæð.
 
Raddir ungs fólks - kl. 12:00- 14:00
Áhersluhópur: Ungmenni (verkefnið er unnið í samstarfi við framhaldskólana á svæðinu, öll ungmenni velkomin), ungmennaráð, sveitarstjórnarfólk, starfsmenn sveitarfélaga, landshlutasamtök, stjórnarfólk í íþróttahreyfingunni.
Markmið fundarins er að búa til opinn og skipulagðan vettvang fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára og veita þeim sem sækja fundinn tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum, reynslu og hugmyndum á framfæri við ráðafólk í íþrótta- og æskulýðsstarfi ásamt fulltrúum sveitarfélaga.
Fundurinn er hluti af landsverkefni UMFÍ, ÍSÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraðanna og Ungmennaráði UMFÍ og miðar að því að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks en sporna líka gegn brottfalli úr skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Fundurinn er leiddur af Ólafi Stefánssyni fyrrum landsliðsfyrirliða í handknattleik, heimspeking og meistaranema í íþróttasálfræði, fulltrúum Ungmennaráðs UMFÍ, svæðisfulltrúum, UMFÍ og ÍSÍ.
 
Stefnumótun íþróttahreyfingarinnar - kl. 16:30 - 18:30
Áhersluhópur: íþróttahreyfingin og áhugafólk um íþróttir. Allir þeir sem vilja hafa áhrif á stefnu þjóðarinnar/íþróttahreyfingarinnar í íþróttamálum.
Vinna er hafin við heildstæða stefnumótun fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi og hófst með formlegum hætti á fundi formanna sérsambanda og íþróttahéraða á Akranesi í nóvember síðastliðnum. Stefnumótun er mikilvægt tæki til að skapa sameiginlega sýn, skýra forgangsröðun og styrkja stoðir íþróttastarfsins og umgjörð til framtíðar.
Skráning hér FUNDIR UM STEFNUMÓTUN