Helgi Rúnar Bragason körfuboltaþjálfari er látinn

Helgi Rúnar Bragason körfuboltaþjálfari er látinn

Í gær, sunnudag lést Helgi Rúnar Bragason fyrrum körfuboltaþjálfari hjá Þór og framkvæmdastjóri ÍBA. Helgi Rúnar, sem var aðeins 47 ára gamall háði harða baráttu við illvígan sjúkdóm sem lagði hann að velli. Eftirlifandi eiginkona Helga er Hildur Ýr Kristinsdóttir og dóttir þeirra er Karen Lind Helgadóttir.

Íþróttafélagið Þór sendir fjölskyldu og ástvinum Helga Rúnars innilegar samúðarkveðjur.