Íslandsbikar á loft á laugardaginn!

Iðunn Rán Gunnarsdóttir, fyrirliði Þórs/KA/Völsungs, lyftir Íslandsbikarnum. Mynd: Skapti Hallgrímss…
Iðunn Rán Gunnarsdóttir, fyrirliði Þórs/KA/Völsungs, lyftir Íslandsbikarnum. Mynd: Skapti Hallgrímsson - Akureyri.net.

Þór/KA/Völsungur mætti liði Breiðabliks/Augnabliks/Smára í leik í A-deild Íslandsmótsins í 2. flokki U20 á laugardag. Stelpurnar höfðu þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn og fengu bikarinn afhentan að leik loknum.

Fyrir leikinn í dag hafði Þór/KA/Völsungur unnið alla tíu leiki sína og er því með fullt hús í A-deildinni. Leikurinn gegn Breiðabliki/Augnabliki/Smára varð aldrei spennandi eins og lokatölurnar gefa til kynna, 13-0 sigur.

Stelpurnar okkar eru vel að þessum Íslandsmeistaratitli komnar enda hefur Þór/KA/Völsungur lagt áherslu á að tefla fram sterku liði í 2. flokki á meðan sum félög leggja meiri áherslu á venslalið í Lengjudeild og 2. deild, en láta 2. flokkinn mæta afganginn.

Emelía Ósk Krüger skoraði þrennu á síðustu 20 mínútum leiksins og varð markadrottning A-deildarinnar með 13 mörk.

  • 1-0 - Júlía Margrét Sveinsdóttir (3'). Stoðsending: Anna Guðný Sveinsdóttir.
  • 2-0 - Hildur Anna Birgisdóttir (12'). Stoðsending: Emelía Ósk Krüger.
  • 3-0 - Krista Dís Kristinsdóttir (15').
  • 4-0 - Júlía Margrét Sveinsdóttir (28'). Stoðsending: Hildur Anna Birgisdóttir.
  • 5-0 - Bríet Jóhannsdóttir (45'). Stoðsending: Iðunn Rán Gunnarsdóttir.
  • 6-0 - Ólína Helga Sigþórsdóttir (47'). Stoðsending: Una Móeiður Hlynsdóttir.
  • 7-0 - Krista Dís Kristinsdóttir (49'). Stoðsending: Una Móeiður Hlynsdóttir.
  • 8-0 - Una Móeiður Hlynsdóttir (56').
  • 9-0 - Ólína Helga Sigþórsdóttir (62').
  • 10-0 - Helga Dís Hafsteinsdóttir (64'). Stoðsending: Amalía Árnadóttir.
  • 11-0 - Emelía Ósk Krüger (72'). Stoðsending: Una Móeiður Hlynsdóttir.
  • 12-0 - Emelía Ósk Krüger (83'). Stoðsending: Krista Dís Kristinsdóttir.
  • 13-0 - Emelía Ósk Krüger (89').


ÍSLANDSMEISTARARNIR
Aftari röð frá vinstri: Pétur Heiðar Kristjánsson þjálfari, Harpa Jóhannsdóttir, Emelía Ósk Krüger, Bríet Jóhannsdóttir, Lilja Gull Ólafsdóttir, Rut Marín Róbertsdóttir, Hanna Klara Birgisdóttir, Amalía Árnadóttir, Ólína Helga Sigþórsdóttir, Tanía Sól Hjartardóttir, Sonja Björg Sigurðardóttir, Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Anna Guðný Sveinsdóttir, Angela Mary Helgadóttir og Ágústa Kristinsdóttir þjálfari.

Fremri röð frá vinstri: Birkir Hermann Björgvinsson þjálfari, Katla Bjarnadóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Helga Dís Hafsteinsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir, Krista Dís Kristinsdóttir, Una Móeiður Hlynsdóttir, Arna Rut Orradóttir, Júlía Margrét Sveinsdóttir og Steingerður Snorradóttir.

Mynd: Skapti Hallgrímsson - Akureyri.net.