Íþróttaskóli Þórs á annan í jólum, söfnun fyrir langveik börn

Bibbi verður með ókeypis tíma fyrir tveggja til fimm ára krakka í Íþróttaskóla Þórs á annan í jólum. 

Tíminn verður í íþróttahúsi Síðuskóla kl. 8:30-10:30 á mánudaginn, 26. desember, annan jóladag. Ókeypis er í þennan tíma og hvetjum við foreldra til að mæta með börnin, fá skemmtilega hreyfingu og hafa gaman. Söfnunarbaukur verður á staðnum og fer það sem safnast til styrktar langveikum börnum á Akureyri.

Facebook-viðburður - sjá hér.

Facebook-síða Íþróttaskólans - sjá hér.