Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
2.flokkur Þórs fékk skemmtilega heimsókn frá Danmörku í Bogann í gærkvöldi en U19 ára lið danska úrvalsdeildarfélagsins Viborg er í æfingaferð á Akureyri þessa dagana og lék af því tilefni æfingaleik gegn okkar mönnum, sem eru ríkjandi Íslandsmeistarar í þessum aldursflokki.
Úr varð hörkuleikur sem lauk með 2-2 jafntefli en hinn 15 ára gamli Smári Signar Viðarsson kom Þór yfir snemma leiks. Danska liðið náði að snúa leiknum sér í vil áður en Smári var aftur á skotskónum undir lok leiks og jafnaði metin.
Afar skemmtilegt fyrir okkar drengi að fá að bera sig saman við akademíulið hjá dönsku atvinnumannaliði. Samanburðurinn áhugaverður að mörgu leyti en til að mynda má nefna að 10 manna þjálfaralið fylgdi danska liðinu.
Um var að ræða afar góðan undirbúningsleik fyrir okkar drengi sem hefja leik í Íslandsmótinu þann 21.febrúar næstkomandi en liðið mun einnig taka þátt í UEFA Youth League í sumar.

Ármann Hinrik var með myndavélina á lofti og á heiðurinn af myndunum hér að neðan.