Jakobína fyrirliði í sterkum sigri á Svíum

Ísfold, Jakobína og Kimberley.
Ísfold, Jakobína og Kimberley.

U19 ára landslið Íslands í fótbolta vann 1-2 sigur á Svíþjóð ytra í dag en um var ræða vináttuleik.

Í hópi Íslands voru þrjár úr Þór/KA; þær Jakobína Hjörvarsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Ísfold Mary Sigtryggsdóttir.

Jakobína og Kimberley voru í byrjunarliði Íslands í dag og Jakobína var fyrirliði liðsins sem vann sem fyrr segir góðan 1-2 sigur. Jakobína lék allan leikinn en Kimberley var skipt af velli á 60.mínútu. Á sama tíma kom Ísfold inná. 

Allar hafa þær komið við sögu með Þór/KA í Bestu deildinni í sumar og halda nú heim á leið ásamt íslenska hópnum og hefja undirbúning fyrir næsta leik Þór/KA sem er heimaleikur gegn ÍBV miðvikudaginn 14.september næstkomandi.