Jason Gigliotti til liðs við Þór

Jason Gigliotti, nýjasti leikmaðurinn í körfuknattleiksliði Þórs.
Jason Gigliotti, nýjasti leikmaðurinn í körfuknattleiksliði Þórs.

Þór skrifaði á dögunum undir samning við Jason Gigliotti. Hann spilar stöðu miðherja en hann er 203 sm á hæð.

Jason er fæddur árið 1999 og verður því 24ra ára á árinu. Jason er með tvöfalt vegabréf, frá Ungverjalandi og Bandaríkjunum og verða því þrír bandarískir leikmenn í Þórsliðinu í vetur.

Jason spilaði síðast í ítölsku C deildinni þar sem hann skoraði 17,9 stig í leik. Áður hafði hann spilað í þrjú ár í háskólaboltanum í Bandaríkjunum fyrir Michigan Dearborn í 2. deild, en þar skoraði hann 11,5 stig í leik og tók átt fráköst að meðaltali.

Hér má sjá valda kafla frá tímabilinu 2022-2023: