Jólagjöfin fæst hjá Píludeildinni

Píludeild Þórs hefur til sölu margs konar varning tengdan pílukasti sem er kjörið að kaupa í jólapakkann.

Eins og sjá má á myndinni hér að neðan er hægt að fá alls konar fyrir pílukastið hjá Píludeildinni, vörur sem er kjörið að gefa píluáhugafólki, jafnt nýliðum sem lengra komnum.

Pílur, leggir, ljós, spjöld, verndarar ... hægt að panta í gegnum pila@thorsport.is, s. 6965725 eða s. 8443813. Píludeildin er til húsa í íþróttahúsinu við Laugargötu.

Ef smellt er á myndina opnast Facebook-hópur Píludeildarinnar.