Jólamót Knattspyrnudeildar á annan í jólum

Tíu lið þegar skráð til leiks. Lokað fyrir skráningu á aðfangadag.

Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni og á samfélagsmiðlum heldur Knattspyrnudeild Þórs árlegt Jólamót sitt í Boganum á annan í jólum. Gert er ráð fyrir að keppni hefjist í hádeginu og spilað í tveimur riðlum. Nú þegar eru tíu lið skráð og gæti enn fjölgað. Lokað verður fyrir skráningu á aðfangadag. 

Notast verður við sömu leikreglur og í Pollamótinu.

Eftirtalin lið hafa skráð sig til leiks:

Allt annar flokkur
Argentína
Grenilundur Park
Hvolpasveitin
KF Móði
KSK
Strawberry Shaqiri
Synir Dragans
Total Chaos
Vinir Linta
600 og eitthvað
603 young bloods

Skráning og nánari upplýsingar eru í gegnum netfangið odinnsvan89@gmail.com.