Kappahl í samstarf með Þór

Knattspyrnudeild Þórs og sænska tískuvörumerkið Kappahl hafa gert með sér samstarfssamning af því tilefni að Kappahl opnaði sína fyrstu verslun á Akureyri í dag.
 
Kappahl býður upp á úrvals fatnað fyrir alla fjölskylduna, jafnt fullorðin sem og börn og hefur notið gríðarlegra vinsælda víða um Evrópu en um er að ræða rótgróið tískuvörumerki sem er með yfir 340 verslanir í Evrópu.
 
Samningurinn er til tveggja ára og fögnum við komu Kappahl í hóp okkar frábæru samstarfsaðila.
 
Við bjóðum Kappahl velkomið í Þorpið!

 

Aðalgeir Axelsson, stjórnarmaður í knattspyrnudeild Þórs og Silja Dögg Baldursdóttir, markaðsstjóri Kappahl á Íslandi undirrituðu samstarfssamninginn við opnun verslunarinnar á Glerártorgi í dag.