Karen Lind í 12 manna hóp u-20

Næstkomandi fimmtudag mun landslið undir 20 ára kvenna halda af stað til Skopje í Makedóníu og taka þar þátt á EM. Þórsarar eiga fulltrúa í 12 manna leikmannahóp, þ.e. hana Karen Lind Helgadóttur. 

Karen spilaði stórt hlutverk í liði meistaraflokki kvenna á síðasta tímabili þar sem hún skilaði sjö stigum, tæpum þremur fráköstum og einni stoðsendingu í leik, ásamt því að skila góðu varnarframlagi og skjóta boltanum vel fyrir utan þriggja stiga línuna. Karen var einnig hluti af liði stúlknaflokks sem urðu deildarmeistarar í 2. deild eftir glæsilegt tímabil án taps. 

Þess má geta að Karen og hin landsliðskonan okkar, Eva Wium, skrifuðu báðar undir nýja samninga við Þór í júní

Við óskum Karen Lind til hamingju með valið og góðs gengis á EM í þessari viku!

U-20 hópinn í heild má sjá HÉR