KA/Þór fær ÍBV í heimsókn í dag

Mikilvægur leikur í Olís-deildinni, fríar pylsur, stuðningsmannabolir til sölu.

Þessi lið áttu að mætast í bikarkeppninni í Eyjum fyrr í mánuðinum, en þeim leik hefur verið þrífrestað vegna vandræða við að fljúga beint frá Akureyri til Eyja. Bikarleikurinn verður 14. desember. En Leikurinn í dag er í Olís-deildinni og þar vantar liðið að ná sér í fleiri stig til að slíta sig frá liðunum fyrir neðan. KA/Þór situr núna í 5. sætinu með fjögur stig, jafn mörg og Haukar, en þar fyrir neðan eru Selfoss og HK, bæði með tvö stig. 

Leikurinn hefst kl. 15 og verða friar pylsur í boði fyrir áhorfendur fyrir leik, stuðningsmannabolir til sölu, ásamt poppi og pizzum. Mikilvægt að fjölmenna á leikinn og styðja stelpurnar í baráttunni í Olís-deildinni.