KA/Þór þarf sigur til að tryggja sér oddaleik

KA/Þór tekur á móti Stjörnunni í öðrum leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni Olísdeildarinnar í handbolta í dag kl. 17.

Liðin mættust í Garðabænum síðastliðinn mánudag og þar hafði Stjarnan betur, vann með fimm marka mun. Stjarnan vann báða heimaleiki sína gegn KA/Þór í deildinni - 29-18 og 19-16, en KA/Þór vann á Akureyri - 21-18. Spiluð var þreföld umferð í deildinni og hittist svo á að Stjarnan fékk tvo heimaleiki, en KA/Þór einn. Stjarnan á jafnframt heimaleik ef kemur til oddaleiks liðanna í þessu einvígi þar sem liðið endaði í 3. sæti deildarinnar en KA/Þór í 6. sæti. Ef til oddaleiks kemur verður hann í Garðabænum á sunnudag.

Nú reynir á stuðningsfólk að mæta og styðja stelpurnar til sigurs í dag og hjálpa þeim við að ná fram oddaleik í einvíginu. Öflugur stuðningur úr stúkunni er einmitt það sem getur skipt sköpum í svona leikjum.

Miðasala er í Stubbi. Aðgangur kostar 2.000 fyrir fullorðna og 500 fyrir börn.