Knattspyra yngri flokkar: Macron mátunardagur í Hamri

Mátunardagur verður fyrir iðkendur í yngri flokkum knattspyrnudeildar Þórs í Hamri miðvikudaginn 29. nóvember kl. 15-17. Macron er með afsláttardaga á fatnaði í vefversluninni á macron.is fyrir Þór og Þór/KA til 3. desember.

Á vef Macron má einnig finna mjög góðar töflur yfir stærðir á fatnaði - https://macron.is/staerdir/

Vörurnar pantar síðan hvert okkar og eitt fyrir sig í netversluninni á macron.is.

Minnum einnig á að í Hamri er félagið með til sölu prjónahúfur, derhúfur, flískraga, sokka og stuttbuxur.