Knattspyrna: Þór vann KF

Þórsarar þurftu að bíða í 78 mínútur eftir marki í Boganum þegar liðið mætti KF í A-deild karla í Kjarnafæðimótinu. Tvö mörk á lokakaflanum tryggðu sigurinn.

Þórsliðið var sterkari aðilinn í leiknum, en markalaust var í leikhléi og alveg fram á 78. mínútu þegar loksins kom mark og fimm mínútum síðar kom annað.

KF - Þór 0-2 (0-1)

  • 0-1 Ingimar Arnar Kristjánsson (78')
  • 0-2 Egill Orri Arnarsson (83').

Þórsarar hafa þar með unnið báða leiki sína hingað til, en nú tekur við jólafrí og næstu leikir eftir áramót. 

Næst 

  • Mót: Kjarnafæðimótið, A-deild karla, B-riðill
  • Leikur: Samherjar - Þór
  • Staður: Boginn
  • Dagur: Sunnudagur 6. janúar
  • Tími: 13:00