Knattspyrna: Þór/KA semur við fjórar ungar heimastelpur

Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Eva S. Dolina-Sokolowska, Bríet Kolbrún Hinriksdóttir og Ísey Ragnarsd…
Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Eva S. Dolina-Sokolowska, Bríet Kolbrún Hinriksdóttir og Ísey Ragnarsdóttir.

Stjórn Þórs/KA hefur samið við fjórar ungar og efnilegar úr leikmannahópi meistaraflokks, fæddar 2008 og 2009.

Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Eva S. Dolina-Sokolowska og Ísey Ragnarsdóttir koma allar úr starfi yngri flokka félagsins og Akureyrarfélaganna tveggja. Þær hafa verið í meistaraflokkshópi Þórs/KA á yfirstandandi tímabili og hafa nú undirritað sína fyrstu leikmannasamninga við félagið. Þær voru allar hluti af U20 liði félagsins sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari í fyrra.

Þær Bríet Kolbrún, Emelía, Eva og Ísey hafa allar verið reglulega í leikmannahópi Þórs/KA í leikjum liðsins í Lengjubikar, Bestu deildinni og Mjólkurbikarkeppninni á árinu.

Bríet Kolbrún Hinriksdóttir (2009)

Bríet Kolbrún er efnilegur markvörður sem hefur komið inn í hópinn og verið varamarkvörður í undanförnum leikjum. Bríet Kolbrún er enn gjaldgeng í 3. flokki, en hefur spilað bæði með 2. og 3. flokki. Hún á einnig að baki tvo leiki með U15 landsliði Íslands. Bríet Kolbrún hefur ekki enn komið við sögu í meistaraflokksleik, en miðað við hæfileika hennar og getu verður þess eflaust ekki langt að bíða að hún spili sinn fyrsta leik.

Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir (2008)

Emelía hefur spilað sem bakvörður og kantmaður og hefur komið við sögu í sjö leikjum í meistaraflokki, en á enn eftir að stíga sín fyrstu skref í leik í Bestu deildinni. Hún hefur verið í leikmannahópi Þórs/KA í leikjum liðsins í Bestu deildinni í sumar. Emelía spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik 9. febrúar í sigri Þórs/KA á Tindastóli í Lengjubikarnum. Þá á hún að baki tvo leiki með U15 landsliði Íslands.

Eva S. Dolina-Sokolowska (2008)

Eva á að baki fimm leiki í meistaraflokki með Þór/KA, þar af eru tvær innkomur í leikjum í Bestu deildinni. Fyrsta innkoma í meistaraflokksleik var í útileik gegn Þrótti 29. september í fyrra, í efri hluta Bestu deildarinnar. Eva er framherji og hefur verið iðin við markaskorun með 2. og 3. flokki félagsins á undanförnum árum.

Ísey Ragnarsdóttur (2008)

Ísey á að baki fjóra leiki í meistaraflokki, þar af einn í Bestu deildinni þegar hún kom inn á í heimaleik gegn Keflavík 1. maí 2023. Ísey hefur spilað í framlínunni og sem kantmaður. Hún kom við sögu í þremur leikjum í Lengjubikarnum í vetur, en hefur ekki komið við sögu í leikjum liðsins í sumar, enn sem komið er.

Stjórn Þórs/KA býður þær Bríeti Kolbrúnu, Emelíu, Evu og Ísey velkomnar í hóp samningsbundinna leikmanna og óskar þeim til hamingju með þeirra fyrsta samning.

Eins og ávallt með okkar leikmenn væntum við mikils af þessum fjórum eins og öðrum leikmönnum félagsins.