Knattspyrna: Þór/KA tekur á móti Þrótti í kvöld

Þór/KA leikur þriðja leik sinn í Lengjubikarnum í dag þegar Þróttarar mæta í Bogann. Leikurinn hefst kl. 18:15. Vekjum athygli á breyttum leiktíma, en báðir leikir dagsins, leikur Þórs og KR í Lengjubikar karla og leikur Þórs/KA og Þróttar í Lengjubikar kvenna, voru færðir aftur um 75 mínútur.

Þór/KA hefur unnið báða leiki sína til þessa og er á toppi riðilsins ásamt FH, sem nú hefur spilað þrjá leiki, unnið tvo og tapað einum. Þróttarar hafa spilað tvo leiki og eru með eitt stig í 5. sæti riðilsins. 

Næst

  • Mót: Lengjubikar kvenna, A-deild, riðill 2
  • Leikur: Þór/KA - Þróttur
  • Staður: Boginn
  • Dagur: Laugardagur 2. mars
  • Tími: 18:15
  • Aðgangur: Ókeypis
  • Útsending: Þór TV, 1.000 kr.