Knattspyrna: Þriðji sigurinn hjá Þór/KA

Þór/KA bauð að venju upp á markaveislu þegar liðið mætti Þrótturum í Boganum í kvöld. Lokatölur urðu 6-2 og Þór/KA er á toppi riðilsins.

Þór/KA var komið með þriggja marka forystu eftir hálftíma leik, en þá hafði Bríet Jóhannsdóttir skorað tvívegis og Sandra María Jessen bætt við þriðja markinu, sínu fyrsta marki af þremur í kvöld. Þróttarar minnkuðu muninn í upphafi seinni hálfleiks, en mark frá Margréti Árnadóttur og tvö frá Söndru Maríu innsigluðu sigurinn þó Þróttarar hafi náð að bæta við öðru marki í lokin. Tveir nýir, erlendir leikmenn komu í fyrsta skipti við sögu með Þór/KA í kvöld, þær Lara Ivanuša og Lidija Kuliš, en þær komu til landsins á miðvikudag og fengu leikheimild frá og með deginum í dag. Þær spiluðu báðar seinni hálfleikinn í dag.

Þór/KA - Þróttur 6-2 (3-0)

  • 1-0 Bríet Jóhannsdóttir (8')
  • 2-0 Bríet Jóhannsdóttir (15')
  • 3-0 Sandra María Jessen (29')
  • 3-1 Sjálfsmark (49')
  • 4-1 Margrét Árnadóttir (57')
  • 5-1 Sandra María Jessen (60')
  • 6-1 Sandra María Jessen (81')
  • 6-2 Freyja Karín Þorvarðardóttir (83')
  • Leikskýrslan (ksi.is)

Þór/KA er í góðri stöðu á toppi riðilsins eftir þrjár umferðir, en liðið er þó ekki öruggt um sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins. Tvö efstu liðin í hvorum riðli fara í undanúrslit. Tvær umferðir eru eftir og verða þær spilaðar um næstu og þarnæstu helgi. Mörkin sem Þór/KA fékk á sig í kvöld voru þau fyrstu sem skoruð eru hjá liðinu í mótinu.

Næst

  • Mót: Lengjubikar kvenna, A-deild, riðill 2
  • Leikur: FH - Þór/KA
  • Staður: Skessan
  • Dagur: Laugardagur 9. mars
  • Tími: 14:00