Knattspyrna: Toppslagur Þórs og KR í Lengjubikar í dag

Efstu liðin í riðli 3 í A-deild Lengjubikars karla eigast við í Boganum í dag. Lengjudeildarlið Þórs tekur á móti Bestudeildarliði KR undir stjórn fyrrum þjálfara Þórs, Greggs Ryder. Vakin er athygli á breyttum leiktíma, en báðum leikjum dagsins, Þór-KR í Lengjubikar karla og Þór/KA-Þróttur, var ýtt áfram um 75 mínútur. Leikurinn hefst kl. 16:15.

Bæði lið hafa spilað þrjá leiki og unnið alla, en Þórsarar eru með örlítið hagstæðari markamun. KR-ingar hafa sigrað HK, Fjölni og Njarðvík, en Þórsarar hafa sigrað Njarðvík, Stjörnuna og HK. Sigurliðið í leik dagsins verður komið í góða stöðu, en Þór mætir Fjölni og KR mætir Stjörnunni í lokaumferð riðilsins sem fer fram um næstu helgi.

Næst

  • Mót: Lengjubikar karla, A-deild, riðill 3
  • Leikur: Þór - KR
  • Staður: Boginn
  • Dagur: Laugardagur 2. mars
  • Tími: 16:15