Koki með fjögur mörk í tapi

Skjáskot af fréttinni á akureyri.net.
Skjáskot af fréttinni á akureyri.net.

Kostadin Petrov lék í gær með landsliði Norður-Makedóníu á HM. Fyrsti leikmaður Þórs til að skora á HM. 

Koki og landar hans máttu sætta sig við 12 marka tap gegn Norðmönnum, en okkar maður skoraði fjögur mörk í leiknum. Fram kemur í frétt á akureyri.net að þetta hafi verið fyrstu mörk sem leikmaður Þórs skorar á HM í handbolta. Aðrir Þórsarar sem spilað hafi með landsliðinu hafi á þeim tímum verið leikmenn annarra liða. Þá kemur einnig fram í frétt Skapta að leikmaður Þórs á síðastliðnu tímabili, Tomislav Jagurinovski hafi skorað eitt mark fyrir Norður-Makedóna í gær.

Sjá frétt Skapta Hallgrímssonar: Fyrstu mörk leikmanns Þórs á HM í handbolta | akureyri.net