Körfubolti: Bikarleikur gegn Aþenu í kvöld

Þór tekur á móti 1. deildar liði Aþenu í 16 liða úrslitum VÍS-bikarkeppni kvenna í dag kl. 18. Leikurinn fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri.

Aþena er í 4. sæti 1. deildar þar sem liðið hefur unnið fimm leiki af átta. Liðið vann unglingaflokkslið Stjörnunnar í síðasta leik í deildinni með 29 stiga mun. Þórsliðið vann Snæfell í síðustu umferð Subway-deildarinnar með 33ja stiga mun. 

Leiknum verður streymt á Þór TV - livey.events/thortv.