Körfubolti: Oddaleikur gegn Skallagrími í Höllinni í kvöld

Þórsarar taka á móti Skallagrími í oddaleik í einvígi liðanna í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta í Höllinni í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:15. Stuðningsfólk er hvatt til að mæta snemma og hita vel upp saman með borgara og spjalli.

Þessi lið enduðu í 5. og 6. sæti deildarinnar og einvígi þeirra hefur verið hnífjafnt, leikirnir unnist með 1-2 stigum nema sá fjórði sem fram fór í Borgarnesi fyrr í vikunni. Þar hrundi leikur okkar manna í seinni hálfleiknum og Skallagrímur vann að lokum með 26 stiga mun. Að öllu eðlilegu má búast við hröðum, jöfnum og skemmtilegum leik í kvöld og mikilvægt að vel verði mætt í stúkuna og strákarnir studdir til góðra verka.

Leikurinn fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri og hefst kl. 19:15. Svæði stuðningsfólks í teríunni verður opið frá kl. 18.

Sigurliðið í kvöld mætir ÍR-ingum í undanúrslitum og hefst það einvígi á miðvikudag í næstu viku.