Körfubolti: Sigur á Íslandsmeisturunum!

Jovanka Ljubetic er illviðráðanleg þegar hún kemst á ferðina. Maður leiksins í kvöld. Mynd: Páll Jóh…
Jovanka Ljubetic er illviðráðanleg þegar hún kemst á ferðina. Maður leiksins í kvöld. Mynd: Páll Jóhannesson.

„Það sem við gerum ekki í fyrri hálfleik, það gerum við í þeim seinni!“ Þannig voru hvatningarorð til Þórsliðsins og stuðningsmanna í stúkunni í Höllinni í kvöld í upphafi seinni hálfleiks þegar Þór mætti Íslandsmeisturum Vals í Subway-deild kvenna í körfubolta. Skotnýtingin var ekki góð hjá okkar konum í fyrri hálfleik og margt sem gekk á afturfótunum, fum, fát og stress, tapaðir boltar og tólf stiga forysta gestanna að loknum fyrri hálfleiknum.

Gestirnir höfðu forystuna nær allan fyrri hálfleikinn, en eftir slaka byrjun náðu Þórskonur þó að jafna í 10-10 með sjö stigum í röð, en aftur náðu Valskonur forystunni og átta stiga munur eftir fyrsta leikhluta. Lokakaflinn í öðrum leikhluta skilaði gestunum 12 stiga forystu þegar gengið var til búningsklefa.

Ef það er eitt sem er ekki til í orðabók Þórsliðsins þá er það orðið „uppgjöf“ og þrátt fyrir að upphaf seinni hálfleiksins gæfi ekki góð fyrir heit um framhaldið áttu undur og stórmerki eftir að gerast. Valur náði mest 18 stiga forskoti, en þá slapp villidýrið laust og forskotið hvarf. Á fjórum mínútum og 41 sekúndu skoruðu gestirnir ekki stig á meðan Þórsliðið skoraði 16 og breytti stöðunni úr 32-50 í 48-50.

Þór var tveimur stigum undir fyrir lokafjórðunginn og þá varð ekki aftur snúið. Gestirnir héldu í forskotið í blábyrjun fjórða leikhluta, en áfram börðust Þórskonur af krafti, dyggilega studdar af tæplega 200 áhorfendum - sem er auðvitað réttara að nefna stuðningsmenn en áhorfendur því stemningin var geggjuð og skilaði sér sannarlega inn í leikinn hjá okkar konum og hélt gestunum niðri. 

Munurinn að lokum sex stig og mistök á ritaraborði í lokasókn Þórs þar sem tíminn fór ekki í gang skiptu í raun engu máli þegar á allt er litið. Þegar sóknin hófst voru 7,2 sekúndur á klukkunni, sóknin kláruð áður en nokkur tók eftir mistökunum. Sóknin gekk fullkomlega upp og Eva Wium komst ein upp að körfunni og skoraði af öryggi. Dómarar réðu ráðum sínum og ákváðu að stig Evu ættu að standa og 1,5 sekúndur væru eftir. Það var of lítið fyrir gestina að gera eitthvað með og sex stiga sigur staðreynd. 

Þór - Valur (12-18) (14-20) 26-38 (22-12) (29-21) 77-71

 

Helstu tölur úr leiknum. Smellið á myndina til að skoða ítarlega tölfræði á vef KKÍ.

Jovanka Ljubetic var valin Sjóvá-maður leiksins og fékk að launum gjafabréf frá AK-INN. Enn og aftur kemur hún út í mestum plús í leik Þórsliðsins þótt hvorki hafi hún verið stigahæst né tekið flest fráköst. Með Jovi inni á vellinum var munurinn 20 stig Þór í vil, sem þýðir að Þór skoraði 20 stigum meira en Valur á þeim 29 mínútum rúmum sem Jovi spilaði í leiknum. 

Stig/fráköst/stoðsendingar

Þór
Lore Devos 26/11/1, Jovanka Ljubetic 14/2/3, Eva Wium Elíasdóttir 13/3/5, Hrefna Ottósdóttir 12/3/2, Maddie Sutton 10/12/8, Heiða Hlín Björnsdóttir 2/1/0, Karen Lind Helgadóttir 0/1/0. 

Valur
Eydís Eva Þórisdóttir 16/2/3, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 15/2/2, Sara Boama 13/3/1, Ásta Júlía Grímsdóttir 12/16/1, Doniyah Cliney 8/5/3, Hildur Kjartansdóttir 7/13/2, Guðbjörg Sverrisdóttir 0/4/0.

Fimm af síðustu sex!

Fyrir um það bil þremur vikum, eftir sögulegan leik gegn Grindvíkingum í Smáranum, benti Daníel Andri Halldórsson, þjálfari Þórsliðsins, á að niðurröðun leikja væri of þétt, ekki gert ráð fyrir endurheimt leikmanna og þá átti liðið fram undan sex leiki á 17 dögum. Núna, að liðnum þessum 17 dögum, hefur liðið unnið fimm af þessum sex leikjum. Eini leikurinn sem liðið vann ekki í þessari törn var gegn Stjörnunni í Garðabænum, sem var mjög naumt tap í jöfnum og spennandi leik. Keflavík og Valur eru á meðal þeirra liða sem Þórsliðið vann í þessari törn. Hreinlega mögnuð frammistaða!

Með sigrinum í kvöld er Þórsliðið komið með átta sigra í 13 leikjum og er áfram í 5. sæti deildarinnar þar sem Stjarnan vann einnig sinn leik í kvöld og tók þriðja sætið af Grindvíkingum, en liðin hafa bæði unnið níu leiki.


Afmælisbarn dagsins, Maddie Sutton. Smellið á myndina til að opna myndaalbúm með fleiri myndum úr leiknum. Mynd: Páll Jóhannesson.

Úrslit leikja í 13. umferðinni

Palli Jóh var mættur með myndavélina og skutlaði stuttu myndbandi af fögnuði Þórsfjölskyldunnar að leik loknum inn á YouTube-rásina sína.