Körfubolti: Þór fær Íslandsmeistarana í heimsókn

Þór fær Íslandsmeistaralið Vals í heimsókn í Íþróttahöllina á Akureyti í 13. umferð Subway-deildarininar í dag. Leikurinn hefst kl. 18:15. Gott tilefni til að fylla Höllina!

Þegar liðin mættust í 4. umferð deildarinnar höfðu Valskonur betur, unnu með tveggja stiga mun í jöfnum og spennandi leik. Þórsliðið er í 5. sæti deildarinnar eftir 12 umferðir, með einum sigri meira en bæði Valur og Haukar. Valur tapaði með 21 stigi fyrir Grindavík í síðustu umferð á meðan Þór vann Snæfell með 33ja stiga mun. Bæði lið spiluðu í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar um helgina og tryggðu sig áfram í átta liða úrslitin. Þór sigraði Aþenu á laugardag, en Valur vann Breiðablik með níu stiga mun. 

Full ástæða er til að hvetja Þórsara til að fjölmenna í Höllina í kvöld og styðja stelpurnar gegn Íslandsmeisturum Vals. Þótt einhverjum hafi mögulega ekki dottið í hug að spá því fyrir mót þá er raunveruleikinn sá að Þór er í harðri keppni við Val og Hauka um sæti í efri hlutanum - og auðvitað liðin fyrir ofan líka, Stjörnuna, Njarðvík, Grindavík og Keflavík. Sigur í kvöld myndi að sjálfsögðu breikka bilið niður í 6. og 7. sætið, sem væri einstaklega gott veganesti í jólafríið.

Best er að vera á staðnum, en fyrir þau sem ekki komast má fylgjast með leiknum í beinni.

Leiknum verður streymt á Þór TV - livey.events/thortv.