Körfubolti: Þór fær Keflavík í heimsókn í dag

Þór og Keflavík mætast í Íþróttahöllinni á Akureyri í Subway-deild kvenna í körfubolta í dag. Leikurinn hefst kl. 17.

Upphaflega var leikurinn á dagskrá síðastliðið miðvikudagskvöld en honum var frestað vegna þess að veður hamlaði flugi og ekki þótti fært að dómarar færu akandi á milli landshluta þó svo Keflavíkurliðið væri klárt í akstur snemma dags, vitandi að líkur voru á frestun flugs. Því miður var ekki heldur hægt að spila leikinn daginn eftir vegna annarrar notkunar Íþróttahallarinnar.

Þór er í 6. sæti deildarinnar með fjóra sigra í átta leikjum, en Keflvíkingar eru á toppnum með fullt hús, hafa unnið alla átta leiki sína það sem af er keppnistímabilinu. Keflvíkingar unnu Íslandsmeistara Vals með 20 stiga mun í síðustu umferð, en Þór tapaði fyrir Grindavík eftir að hafa unnið tvo leiki í röð þar á undan.

  • Deild: Subway-deild kvenna
  • Leikur: Þór - Keflavík
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Sunnudagur 26. nóvember
  • Tími: 17:00

Að venju verða borgarar á grillinu fyrir leik.

Leikurinn verður í beinni á Þór TV.