Körfubolti: Þór - Fjölnir í dag

Þór tekur á móti liði Fjölnis í Subway-deild kvenna í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag kl. 17.

Leikur þessara liða átti upphaflega að vera á sunnudag, en var færður fram um einn dag. Fyrir leikinn í dag eru Þórsarar í 6. sæti deildarinnar með fimm sigra í tíu leikjum. Fjölnir er í 8. sæti, en liðið hefur unnið þrjá leiki, þar á meðal leik þessara liða fyrr í haust.

  • Mót: Subway-deild kvenna
  • Leikur: Þór - Fjölnir
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Laugardagur 2. desember
  • Tími: 17:00