Körfubolti: Þór mætir Haukum í dag kl. 18

Þórsarar taka á móti Haukum í 32ja liða úrslitum bikarkeppninnar, VÍS bikarsins, í dag. Leikurinn fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri og hefst kl. 18.

Búast má við erfiðum leik fyrir okkar menn gegn Haukum, sem leika í Subway deildinni og hafa unnið einn leik af fyrstu þremur. Þórsarar hafa spilað þrjá leiki í 2. deildinni og hafa enn ekki náð að landa sigri þrátt fyrir ágæta frammistöðu í leikjunum.

Leiknum verður streymt á Þór TV: