Körfubolti: Þór tekur á móti Ármanni í kvöld

Þórsarar fá Ármenninga í heimsókn í Höllina í kvöld kl. 19:15 í 20. umferð 1. deildar karla í körfubolta. 

Nú eiga öll liðin eftir þrjá leiki og má segja að liðin í 5.-8. sæti eigi í harðri baráttu um endanlega röð í deildinni áður en kemur að úrslitakeppninni. Eins og áður hefur komið fram hér fer eitt lið beint upp í Subway-deildina, en liðin í 2.-9. sæti fara í úrslitakeppni um annað laust sæti. Miðað við stöðuna í dag færi ÍR beint upp, en viðureignir í úrslitakeppni yrðu: KR-Selfoss, Fjölnir-Þór, Sindri-ÍA, Skallagrímur-Þróttur V. Þetta gæti þó auðvitað átt eftir að breytast í þremur síðustu umferðunum.

Hér að neðan má sjá stöðuna í deildinni og svo leikina sem Þór og næstu lið fyrir ofan eiga eftir í þessum þremur síðustu umferðum.

  • Skallagrímur – 10 sigrar – ÍA (ú), Ármann (h), Þór (ú).
  • Þróttur V. – 9 sigrar – Sindri (ú), Snæfell (h), Fjölnir (ú)
  • ÍA – 9 sigrar – Skallagrímur (h), KR (ú), Selfoss (h)
  • Þór – 8 sigrar – Ármann (h), Sindri (ú), Skallagrímur (h)

Næst

  • Leikur: Sindri - Þór
  • Staður: Ice Lagoon höllin, Hornafirði
  • Dagur: Föstudagur 15. mars
  • Tími: 19:15