Körfubolti: Þórsarar fá Hrunamenn í heimsókn í kvöld

Þórsarar taka á móti Hrunamönnum í 6. umferð 1. deildar karla í körfubolta í kvöld. Leikurinn fer fram í Íþróttahöllinni og hefst kl. 19:15.

Bæði lið hafa unnið einn leik af fyrstu fimm, eins og Ármann og Snæfell. Eini sigur Hrunamanna hingað til kom gegn Ármenningum, en eini sigur Þórsara gegn Selfyssingum. Hrunamenn töpuðu naumlega fyrir Selfyssingum í síðustu umferð á meðan Þórsarar máttu sætta sig við 11 stiga tap gegn ÍR í Breiðholtinu.

Leikur Þórs og Hrunamanna verður í beinni útsendingu á Þór TV.