Körfubolti: Þórsarar mæta Þrótti úr Vogum í Sandgerði

Þórsarar mæta Þrótti úr Vogunum í 8. umferð 1. deildar karla í körfubolta í kvöld. Leikurinn fer fram í Sandgerði þar sem ekki er til staðar löglegt hús í Vogunum fyrir Þróttara til að spila heimaleiki sína.

Þróttarar kom upp í 1. deildina fyrir yfirstandandi tímabil og hafa byrjað vel. Þeir hafa unnið fimm leiki af fyrstu sjö og eru í 4. sæti deildarinnar með jafn marga sigra og Sindri. Þróttarar unnu Hrunamenn örugglega í síðustu umferð með 28 stiga mun, en á sama tíma töpuðu Þórsarar naumlega fyrir Skagamönnum. Þórsarar hafa unnið tvo leiki hingað til og eru í 8. sæti með jafn marga sigra og Selfyssingar.

  • Deild: 1. deild karla
  • Leikur: Þróttur V. - Þór
  • Staður: Sandgerði
  • Dagur: Föstudagur 24. nóvember
  • Tími: 19:15