Körfubolti: Þórsarar sækja ÍR-inga heim í kvöld

Karlalið Þórs í körfubolta heldur suður á bóginn í dag og mætir liði ÍR-inga í Skógarselinu í kvöld kl. 19:15.

Þórsarar unnu sinn fyrsta sigur í deildinni í síðustu umferð þegar Selfyssingar koma norður, en gera má ráð fyrir að andstæðingur kvöldsins verði sterkari en síðastliðinn föstudag. ÍR-ingar eru í 3. sæti deildarinnar með þrjá sigra í fyrstu fjórum leikjunum.

  • Deild: 1. deild karla
  • Leikur: ÍR - Þór
  • Staður: Skógarsel
  • Dagur: 3. nóvember
  • Tími: 19:15